23.06.2009 - Fyrstu nįmskeišin į Akureyri aš fara af staš!

Útibússtjóri Línuskauta.is á Akureyri hefur tilkynnt um fyrstu námskeið sumarsins á Akureyri.  Það er um að gera fyrir þá sem hafa verið norðan heiða og ekki komist á línuskautanámskeið í borginni að skella sér á þetta stórgóða námskeið hjá Jóni B. Gíslasyni.

Þeir sem vilja skella sér á námskeið er bent á að hafa samband við hann Jón í netfangið jon@linuskautar.is.  Fyrirhugað er að fyrsta námskeið verði á föstudagskvöldið.  Námskeiðið verður haldið við fyrir utan Parket og Gólf á Njarðarnesi 4.

Námskeiðið skiptist í tvo hluta, á föstudagskvöldið kl.19:00 og sunnudaginn kl.15:00.

«Til baka