28.06.2009 - Línuskautahokkínámskeiđ í Keflavík í júlí

Í júlímánuði verða Línuskautar.is með línuskautahokkínámskeið í Keflavík, nánar tiltekið í Tómstundarhúsinu á gamla varnarliðssvæðinu.  Kennt verður mánudaga, miðvikudaga og föstudaga og er þetta námskeið fyrir alla hressa krakka á aldrinum 10 til 16 ára.  Þeir sem hafa áhuga á að skella sér á þetta námskeið geta skráð sig og fengið frekari upplýsingar í gegnum tölvupóst street@linuskautar.is

Síðar í júlímánuði verður streethokkímót á sama stað og fer liðaskráning fram í gegnum netfangið streetmot@linuskautar.is. Mótið verður haldið dagana 17 til 19.júlí.  Nánari dagskrá verður tilkynnt síðar.

«Til baka