Streethokkínámskeið í Reykjanesbæ

Í júlí mánuði er ætlunin að vera með Streethokkínámskeið í Línuskautahúsinu (Tómstundarhúsinu) á fyrrverandi varnarliðssvæðinu.  Æft verður 3 sinnum í viku 1 1/2 til 2 klst í senn.  Námskeiðin verða mánudaga, miðvikudaga og föstudaga frá kl.15:00 til kl.17:00 í júlímánuði.  Þetta námskeið er ætlað öllum krökkum á aldrinum 10 til 16 ára.

Hvað þarf að hafa
Æskilegast er að þátttakendur eigi línuskauta og einhvern lágmarks hlífðarbúnað.  Kylfur, mörk og boltar (eða pekkir) verða útvegaðir af linuskautar.is.

Þjálfarar
Þórhallur Viðarsson er vel reyndur íshokkímaður sem hefur unnið fjölmarga titla í unglingaflokki svo og Meistaraflokki með Skautafélagi Reykjavíkur.  Hann hefur einnig verið valin í unglinga og karlalandslið Íslands í íshokkí.

Pétur Andreas Maack er búin að vera í Skautafélagi Reykjavíkur frá því að hann man eftir sér.  Hann vann sér sæti í karlalandsliði Íslands sem fór og tryggði besta árangur Íslands í heimsmeistaramótinu í Novi Sad, Serbíu, á síðasta keppnistímabili.  Hannn spilaði einnig lykilhlutverk í Íslandsmeistaratitli Skautafélags Reykjavíkur nú á vordögum.

Skráningar fara fram í netfangið street@linuskautar.is.  Tilgreina þarf nafn og aldur þátttakenda svo og nafn, síma og netfang foreldris eða forráðamanns.